Hér er áætlun Egyptalandsferðar í byrjun nóvember

Áskil mér rétt til breytinga ef þurfa þykir

Bráðabirgðaverð er 370 þúsund. Hef sent þátttakendum lista um hverning ferðin skuli greidd. Í augnablikinu( 6.júlí) má bæta við tveimur ef þeir gefa sig fram fljótlega. Bið alla að senda mér vegabréfsnúmer, útgáfudag, ár og gildistíma svo áritunarmál gangi snurðulaust og einnig þarf ég að senda vegabréfsnúmerin á hótelin. Muna að vegabréf verða að vera gild í sex mánuði eftir að ferð lýkur

1.dagur.1.nóv

Flogið um London . og svo áfram til Kairó. Við komuna er gengið frá vegabréfsáritunum og egypski gædinn tekur á móti okkur Til Kairó. Við komuna til Kairó er gengið frá vegabréfsáritunum og haldið á Pyramisa sem er 4-5 stjörnu hótel.

2.dagur. 2nóv
Morgunverður
Rólegur morgun.
Eftir hádegi í citadelluna fyrir ofan Kairó. Komið við í ilmvatnsbúð og papírusverksmiðju. Ef tími vinnst til er komið við á markaðnum Khan Khanlili en það ræðst af tíma.

3.dagur.3.nóv
Morgunverður
Rólegur morgun.
Farið út að piramidunum í Giza og að sfinxinum. Á heimleiðinni í papýrusverslun þar sem við sjáum hvernig papýrus er búinn til. Ef tími vinnst til einnig í teppaskóla. Hádegisverður er innifalinn

4.dagur 4.nóv
Morgunverður. TIl Memphis, hinnar fornu höfuðborgar og Saqqara þar sem er elsti píramídi Egyptalands. Frjáls eftirmiðdagur

5.dagur 5.nóv
Morgunverður. Út á flugvöll og flogið suður til Aswan.
Þegar til Aswan kemur förum við á hótelið Mövenpick sem er 5 stjörnu hótel. Við siglum út í Fílaeyju, förum að hinni frægu Aswan stíflu og skoðum fleira gagnmerkt

6.dagur 6.nóv
Njótum þess að vera í Aswan. Siglum á felukka um eyjarnar og eyðum deginum í leti og blíðu ef við viljum.

7. dagur 7.nóv
Lagt af stað um miðja nótt út til Abu Simbel sem er eitt og sér þess virði að fara í Egyptalandsferð. Nestishádegisverður er innifalinn
Komum aftur síðdegis.


8.dagur. 8.nóv
Við förum í rútu til Lúxor og komum við í Edfu og Komombo hofunum
Við komuna til Luxor höldum við á Steigenberger Það er 5 stjörnu hótel

9.dagur 9.nóv
Morgunverður
Við förum í dali Kónga og drottninga og skoðum hof skeggdrottningarinnar Hatsjepút og loks skoðum við alabasturverksmiðju en Egyptar eru frægir fyrir fagra muni úr alabastri.

10.dagur 10.nóv
Morgunverður
Um hádegið er flogið til Kairó og farið aftur á Pyramisa. Heimsókn síðdegis á egypska safnið . Flogið til Kairó um kvöldið.

11. dagur 11.nóv
Morgunverður
Fyrir hádegi er farið í þann hluta borgarinnar þar sem moska, kirkja og syngagóga eru á litlum blessi.Að öðru leyti er dagurinn frjáls


12.dagur 12.nóv
Morgunverður.
Brottför til London og síðan nokkrum klst síðar heim til Íslands


Innifalið í ferðinni:
Flug og skattar
Vegabréfsáritun
Gisting á 5stjörnu hótelum.
Morgunverður
Fjórir hádegisverðir
Íslensk fararstjórn
Tips til burðarmanna á flugvöllum, við lestir og hótel
Aðgangseyrir á skoðunarstaði sem nefndir eru í áætlun.
Flug frá Lúxor til Kairó.
Ferðin til Abu Simbel
Felucca sigling
Tveir kdöldverðir, annar í boði egypsku ferðaskrifstofunnar og hinn í boði johannatravel

Ekki innifalið:
Hádegis- og kvöldverðir(aðrir en þeir sem eru nefndir í áætlun)
Tips fyrir egypsku fararstjóra og bílstjóra 120 dollarar á mann. Innheimti þá einhvern fyrstu dagana
Allir drykkir